Leikskólakennarar óskast til starfa

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara til starfa frá 1. september næstkomandi, um er að ræða 100% starfshlutfall.

Suðurvellir er fjögurra deilda leikskóli sem vinnur eftir Viðmiðum Heilsustefnunnar. Virðing og umhyggja eru leiðandi hugtök í leikskólanum og áhersla er lögð á gæði í samskiptum. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Umsóknum skal skila á netfangið leikskoli@vogar.is  ásamt upplýsingum um menntun og reynslu fyrir 12. ágúst  n.k.

Nánari upplýsingar veitir: María Hermannsdóttir leikskólastjóri í síma 6905716. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á leikskoli@vogar.is 

Ef leikskólakennari fæst ekki til starfa koma aðrir umsækjendur til greina.