Leikskólakennarar óskast til starfa

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara til starfa.

Suðurvellir er fjögurra deilda leikskóli sem vinnur eftir Viðmiðum Heilsustefnunnar. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Umsóknareyðublöð má nálgast í leikskólanum, einnig er hægt að sækja um með rafrænum hætti á  http://www.leikskolinn.is/sudurvellir  

Umsóknarfrestur er til 5. september n.k.

 Ef leikskólakennarar fást ekki til starfa koma aðrir umsækjendur til greina.
 
Nánari upplýsingar veita:
María Hermannsdóttir skólastjóri og Oddný Baldvinsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 440-6240. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á leikskóli@vogar.is