LEIKSKÓLAKENNARAR OG ANNAÐ UPPELDISMENNTAÐ STARFSFÓLK ATHUGIÐ

Okkur í heilsuleikskólanum Suðurvöllum vantar jákvæða og hressa leikskólakennara í 100% stöður sem fyrst.
Leikskólinn er þriggja deilda í nýlegu, glæsilegu húsnæði með góðri aðstöðu.

Ef ekki fæst uppeldismenntað starfsfólk, verða aðrar umsóknir teknar til umfjöllunar.

Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast í leikskólanum og á skrifstofu sveitarfélagsins Voga.  Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst nk.

Nánari upplýsingar veita Salvör Jóhannesdóttir og María Hermannsdóttir í síma 424-6817.