Leikskólakennarar og annað uppeldismenntað starfsfólk athugið

Okkur í heilsuleikskólanum Suðurvöllum í Vogum vantar jákvæða og hressa leikskólakennara í 100% stöður frá 13. ágúst nk.

Leikskólinn er þriggja deilda í nýlegu, glæsilegu húsnæði með góðri aðstöðu.
Ef ekki fæst uppeldismenntað starfsfólk, verða aðrar umsóknir teknar til umfjöllunar.

Umsóknareyðublöð er að finna á netslóðinni www.vogar.is og í leikskólanum.  Umsóknarfrestur er til  5. júlí nk.

Nánari upplýsingar veita Salvör Jóhannesdóttir skólastjóri leikskólans og María Hermannsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 424-6817.