Leikskólakennarar athugið

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara til starfa í 100% stöðu frá og með 8. ágúst n.k.

Suðurvellir er fjögurra deilda leikskóli sem vinnur eftir viðmiðum heilsustefnunnar. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Umsóknareyðublöð má nálgast í leikskólanum Suðurvöllum, Suðurgötu 1-5, 190 Vogar. Einnig er hægt að sækja um með rafrænum hætti á  http://www.leikskolinn.is/sudurvellir  

Umsóknarfrestur er til  13. maí n.k. 

Nánari upplýsingar veita María Hermannsdóttir skólastjóri og Oddný Baldvinsdóttir aðstoðarskólastjóri
í síma 440-6240.