Leikskólakennarar

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara til starfa frá 10. ágúst næstkomandi. Um er að ræða 100% stöður.

Suðurvellir er fjögurra deilda leikskóli sem vinnur eftir viðmiðum heilsustefnunnar.
Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Umsóknareyðublöð má nálgast í leikskólanum, einnig er hægt að sækja um með rafrænum hætti á  http://www.leikskolinn.is/sudurvellir

Umsóknarfrestur er til 1. júlí n.k. 

Nánari upplýsingar veita María Hermannsdóttir, skólastjóri og
Oddný Baldvinsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 440-6240.