Leik Þróttar og KFS frestað til kl. 13:00 á laugardaginn

Knattspyrnuleik Þróttar og KFS í 3. deildinni hefur verið frestað til kl. 13:00 laugardaginn 8. ágúst. Leikurinn átti að fara fram föstudaginn 7. ágúst kl. 18:00, en þar sem ekki er flugfært frá Vestmannaeyjum þurfti að fresta leiknum um einn dag. Vogabúar og aðrir stuðningsmenn Þróttar eru að sjálfsögðu hvattir til að mæta í appelsínugulu á völlinn á laugardaginn kl. 13:00 og hvetja sína menn í baráttunni.