Laust til umsóknar starf umsjónarmanns eigna í grunnskóla og leikskóla.

Sveitarfélagið Vogar auglýsir laust til umsóknar starf umsjónarmanns eigna í grunnskóla og leikskóla.
Starfið er fjölþætt þar sem reynir á hæfni til að vinna með fólki á öllum aldri.

Hæfniskröfur :
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi .
Þekkingu og reynslu af léttum viðhaldsverkefnum.
Reynslu af innkaupum og áætlanagerð.
Tölvukunnátta, Word og Excel.
Vinnuvélaréttindi, aukin ökuréttindi (litla rútuprófið).

Um er að ræða 100% starf ásamt þátttöku í bakvaktarkerfi Sveitarfélagsins.
Hreint sakarvottorð skilyrði

Æskilegt að geta hafið störf sem fyrst, upplýsingar gefur Vignir Friðbjörnsson í síma 8936983
Umsóknarfrestur er til 7. október nk.
Umsóknum skal skila á netfangið vignir@vogar.is
Laun fara eftir samningum Starfsmannafélags Suðurnesja.