Laust starf til umsóknar, starfsmaður íþróttamiðstöðvar

Laust starf til umsóknar – Starfsmaður íþróttamiðstöðvar.

Auglýst er eftir starfsmanni í 100% starf í íþróttamiðstöð (vaktavinna).
Starfið felst í laugargæslu, gæslu í karlaklefa, þrifum og öðrum störfum er tilfalla í íþróttamiðstöðinni.
Hæfniskröfur eru frumkvæði, áræðni, góðir hæfileikar í mannlegum samskiptum og hæfni til að umgangast fólk á öllum aldri. Starfsmaður verður að standast kröfur sem gerðar eru til starfsfólks sundstaða.
Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri og þurfa að geta hafið störf hið fyrsta.
Íþróttamiðstöðin er reyklaus vinnustaður.
Hægt er að óska eftir frekari upplýsingum með tölvupósti á netfangið stefan@vogar.is
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 12. ágúst, 2016.
Umsóknum skal skilað á netfangið stefan@vogar.is fyrir lok þess dags.
Frístunda- og menningarfulltrúi Voga