Laust starf til umsóknar – Starfsmaður íþróttamiðstöðvar

Auglýst er eftir starfsmanni í 65% starf í íþróttamiðstöð (vaktavinna).

Starfið felst í laugargæslu, gæslu í kvennaklefa, þrifum og öðrum störfum er tilfalla í íþróttamiðstöðinni.

Hæfniskröfur eru frumkvæði, áræðni, góðir hæfileikar í mannlegum samskiptum og hæfni til að umgangast fólk á öllum aldri.

Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri og þurfa að geta hafið störf hið fyrsta.

Íþróttamiðstöðin er reyklaus vinnustaður.

Nánari upplýsingar veitir Stefán Arinbjarnarson, sími 867-8854 stefan@vogar.is

Umsóknarfrestur er til föstudagsins 23. október, 2015.

Umsóknum skal skilað á netfangið stefan@vogar.is fyrir lok þess dags.

Frístunda- og menningarfulltrúi Voga