Laust starf til umsóknar

Matráður og móttökustarfsmaður í Álfagerði

Sveitarfélagið Vogar auglýsir laust til umsóknar 50% starf matráðs og læknamótttöku í Álfagerði, þjónustumiðstöð 60 ára og eldri. Um framtíðarstarf er að ræða.

Verksvið
Starfið felst í umsjón með eldhúsi, móttöku og framreiðslu hádegisverðar kl. 11:30 alla virka daga auk frágangs. Starfið felur einnig í sér umsjón með veitingum á tilfallandi viðburðum í félagsstarfi eldri borgara seinnipart og á kvöldin.
Að auki fer fram læknamóttaka  á þriðjudagsmorgnum í Álfagerði og ber viðkomandi ábyrgð á því að taka á móti skjólstæðingum og innheimta greiðslur.

Hæfniskröfur
Reynsla af ofangreindum verkefnum sem nýst getur í starfi.
Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja.

Um 50% starf er að ræða og er vinnutími sem hér segir;
Mánudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 11:00-14:00,
Þriðjudaga kl. 8:00-14:00,
Miðvikudaga kl. 11:00-16:00
Nánari upplýsingar veitir Stefán Arinbjarnarson í síma 867-8854.
Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2017. Umsóknum skal skila á netfangið stefan@vogar.is