Laust er til umsóknar starf á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga. Um er að ræða 70-100% starf við afgreiðslu, almenn skrifstofustörf og verkefni tengd bókhaldi.
Hæfniskröfur:
• Verslunar- eða stúdentspróf og /eða reynsla af skrifstofustörfum.
• Tölvukunnátta er áskilin.
• Reynsla og þekking á skjalavörslu og bókhaldi er kostur.
• Frumkvæði og sjálstæði í starfi.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknarfrestur er til 18. desember n.k.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu bæjarins.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um menntun og ferilskrá skal skila á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga merkt ,,Skrifstofustarf”.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesjabyggða.
Nánari upplýsingar eru veitir Anna Hulda Friðriksdóttir skrifstofustjóri í
síma 424-6660.