Lausir tímar til útleigu á haustönn í Íþróttamiðstöð Voga

Íþróttamiðstöð Voga auglýsir tíma í íþróttasal lausa til útleigu. Um er að ræða klukkustundarlanga tíma á haustönn.
Leigutímabilið er frá september og fram að jólum. Aðstaða er öll til fyrirmyndar, fjaðrandi parketgólf, loftræstur salur og góð búningsaðstaða.
Tilvalinn salur fyrir t.d. knattspyrnu, körfuknattleik eða badminton.
Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfangið stefan@vogar.is eða í síma íþróttamiðstöðvar 440-6220