Lausar stöður við Heilsuleikskólann Suðurvelli

Óskum eftir að ráða í eftirfarandi stöður frá áramótum.

• Starfsmaður í eldhús - 62,5% starfshlutfall.
• Leikskólakennara - 100% starf.

Suðurvellir er fjögurra deilda leikskóli sem vinnur eftir Viðmiðum Heilsustefnunnar. Virðing og umhyggja eru leiðandi hugtök í leikskólanum og  áhersla er lögð á gæði í samskiptum. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Umsóknum skal skila á netfangið leikskoli@vogar.is eða heimasíðu leikskólans  www.leikskolinn.is/sudurvellir  fyrir 9. desember  n.k.

Nánari upplýsingar veita: María Hermannsdóttir leikskólastjóri
og Oddný Baldvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 440-6240.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á leikskoli@vogar.is  

Ef leikskólakennarar fást ekki til starfa koma aðrir umsækjendur til greina.

Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um störfin.