Lausar stöður við Heilsuleikskólann Suðurvelli

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða deildarstjóra og leikskólakennara til starfa næsta haust.

Suðurvellir er fjögurra deilda leikskóli sem vinnur eftir Viðmiðum Heilsustefnunnar. Virðing og umhyggja eru leiðandi hugtök í leikskólanum og áhersla er lögð á gæði í samskiptum. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Umsóknum skal skila á netfangið leikskoli@vogar.is  ásamt upplýsingum um menntun og reynslu fyrir 1. maí  n.k.

Nánari upplýsingar veita: María Hermannsdóttir leikskólastjóri
og Oddný Baldvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 440-6240.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á leikskoli@vogar.is  

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga   og KÍ.

Ef leikskólakennarar fást ekki til starfa koma aðrir umsækjendur til greina.