Lausar stöður í grunn- og leikskóla

Nemendur og starfsfólk í Stóru- Vogaskóla og Heilsuleikskólanum Suðurvöllum í Vogum leita að áhugasömu fólki til samstarfs næsta skólaár.

Stóru- Vogaskóli
Stóru- Vogaskóli er glæsilegur skóli, einsetinn og heildstæður með um 220 nemendum.
Einkunnarorð skólans eru virðing- vinátta- velgengni.
Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar.

Lausar stöður
• Umsjónarkennara á yngsta, miðstig og unglingastig.
• Íslenskukennara á unglingstigi
• Dönskukennara á unglingstigi
• Stærðfræðikennara á unglingstigi
• Textílkennara(saumar)
• Heimilisfræðikennara
• Sérkennara
• Námsráðgjafa 50%
• Þroskaþjálfa
• Stuðningsfulltrúa

Heilsuleikskólinn Suðurvellir
Suðurvellir er vel búinn leikskóli sem vinnur eftir viðmiðum heilsuleikskóla. Við leikskólann bætist ein deild í ágúst næstkomandi.
Einkunnarorð leikskólans eru: Heilbrigð sál í hraustum líkama.

Lausar stöður
• Leikskólakennara
• Matráðs

Nánari upplýsingar veita
Sveinn Alfreðsson, skólastjóri í síma 424-6655 og sveinn@vogar.is
Salvör Jóhannesdóttir, leikskólastjóri í síma 424- 6817 og
leikskoli@vogar.is

Sveitarfélagið Vogar er ört vaxandi sveitarfélag með um 1.250 íbúa í næsta nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Í sveitarfélaginu er lögð áherslu á fjölskylduvænt umhverfi og heilsueflingu í skóla og leikskóla.
www.vogar.is