Lausar lóðir við Hólagötu

Sveitarfélagið Vogar auglýsir lausar til úthlutunar einbýlishúsalóðir við Hólagötu 3 og 5. Deiliskipulagsuppdrátt af svæðinu má finna undir Skipulag og framkvæmdir hér á vefnum.

Lóðirnar eru auglýstar lausar til umsóknar á grundvelli úthlutunarskilmála fyrir Hólagötu 3 og 5 sem eru aðgengilegir hér.

Úthlutunarskilmálar

Allir umsækjendur skulu standast almennar reglur um úthlutanir lóða í hverfinu, sbr. ofangreinda úthlutunarskilmála.

Frestur til að skila inn umsóknum er til 24. ágúst 2007.

Umsóknareyðublöð og skipulagsuppdrættir fást á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga að Iðndal 2, Vogum og hér

Umsóknareyðublað

Með umsóknareyðublaði skal skila þeim gögnum sem óskað er eftir í samræmi við úthlutunarskilmála.

Nánari upplýsingar veitir byggingafulltrúi í síma 424-6660.

Byggingafulltrúi Sveitarfélagsins Voga.