Laus störf til umsóknar – Starfsfólk íþróttamiðstöðvar

Auglýst er eftir starfsmanni í 100% starf í íþróttamiðstöð (vaktavinna).
Starfið felst í laugargæslu, gæslu í karlaklefa, þrifum og öðrum störfum er tilfalla í íþróttamiðstöðinni.
Hæfniskröfur eru frumkvæði, áræðni, góðir hæfileikar í mannlegum samskiptum og hæfni til að umgangast fólk á öllum aldri.
Starfsmaður verður að standast kröfur sem gerðar eru til starfsfólks sundstaða.
Einnig er auglýst eftir starfsmanni í 65% starf í íþróttamiðstöð (vaktavinna).
Starfið felst í laugargæslu, gæslu í kvennaklefa, þrifum og öðrum störfum er tilfalla í íþróttamiðstöðinni.
Hæfniskröfur eru frumkvæði, áræðni, góðir hæfileikar í mannlegum samskiptum og hæfni til að umgangast fólk á öllum aldri.
Starfsmaður verður að standast kröfur sem gerðar eru til starfsfólks sundstaða.
Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri og þurfa að geta hafið störf um mánaðamótin ágúst/september.
Íþróttamiðstöðin er reyklaus vinnustaður.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Arinbjarnarson, sími 440 6225 stefan@vogar.is
Umsóknarfrestur er til mánudagsins 15. ágúst, 2011.
Umsóknum skal skilað á netfangið stefan@vogar.is fyrir lok þess dags.