Laugarásbíó gefur Þrótti Vogum sundhettur !

Iðkendur hjá sunddeild Þróttar Vogum fengu myndarlega gjöf í vikunni þegar Sandra Björk frá Laugarásbíó afhenti Þrótti Vogum sundhettur að gjöf frá Laugarásbíó.

Að sögn Marteins Ægissonar framkvæmdastjóra Þróttar þá hefur verið mikill uppgangur í sundinu hjá félaginu að undanförnu og mun þessi gjöf til iðkenda félagsins stuðla að frekari eflingu deildarinnar. Það eru í kringum 30. börn sem æfa sund hjá félaginu í dag.

Þjálfari sunddeildar Þróttar er Jóna Helena Bjarnadóttir.

Á myndinni eru: Sandra Björk Magnúsdóttir markaðsstjóri Laugarásbíó, Jóna Helena Bjarnadóttir þjálfari hjá Þrótti Vogum, Sylvía Sigurbjörg og Karítas Talía iðkendur hjá sunddeild Þróttar Vogum.