Landsmót Samfés á Reykjanesi 3. - 5. október

Landsmót Samfés verður haldið á Reykjanesi dagana 3.-5 október næstkomandi.

Markmið landsmótsins er að stjórnir í unglingaráðum félagsmiðstöðva landsins hafi vettvang til að mynda tengsl og kynnast nýjum hugmyndum sem hægt er að nýta í starfi félagsmiðstövanna. Landsmótið er þó alls ekki einskorðað við fulltrúa úr unglingaráðum.

Meginþungi Landsmótsins verður í Garði en sveitarfélagið fagnar 100 ára afmæli sínu á þessu ári. Eins og venjan er verður boðið er upp á mismunandi smiðjur sem unglingarnir velja um að taka þátt í á laugardeginum 4. október kl. 10:00 - 16:00. Afrakstur er svo sýndur í hátíðarkvöldverði um kvöldið.

Sú nýbreytni verður á þessu móti að Landsþing Ungmennaráðs Samfés verður haldið á sunnudeginum og verður það í Open Space umræðustíl. Það er Ungmennaráð Samfés sem heldur utan um það.

Fulltrúar Félagsmiðstöðvarinnar Borunnar í Vogum á landsmótinu verða Katrín Lára, Sólrún Ósk Árnadóttir, Þorgerður Magnúsdóttir, Dagbjört Katrín, Berglind Káradóttir og Marta Alexdóttir.