Rauði krossinn á Íslandi stendur fyrir landsæfingu sunnudaginn 19. október, milli klukkan 11-15, og býður þjóðinni jafnframt í mat. Alls verða 48 fjöldahjálparstöðvar opnaðar um allt land, þar af ein í Grunnskólanum í Sandgerði, þar sem sjálfboðaliðar Rauða krossins standa vaktina, rétt eins og um alvöru neyðarástand væri að ræða. Klúbbur matreiðslumeistara leggur Rauða krossinum lið á landsæfingunni með því að reiða fram þjóðarréttinn, íslenska kjötsúpu.
Á síðustu vikum höfum við sem búum á þessari eyju í Norður-Atlantshafi verið rækilega minnt á kraft óútreiknanlegra náttúruafla. Hættan er ætíð til staðar fyrir alla sem hér eru staddir, þar sem neyð gæti orðið raunin á örskammri stundu. Skapist alvöru neyð er mikilvægt fyrir alla landsmenn, og gesti okkar einnig, að vita hvert á að sækja hjálp og hvar er hægt að komast í öruggt skjól.
Rauði krossinn á Íslandi vonast til að sjá sem flesta á landsæfingunni. Það er hagur okkar allra.
Hér má sjá lista yfir þær fjöldahjálparstöðvar sem verða opnaðar á sunnudag: