Kynningargögn, vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulags, fyrir athafnasvæði við Vogavík.

Kynningargögn vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 og deiliskipulags vegna áforma um skrifstofubyggingu, rannsóknastofu og stækkun fiskeldis við Vogavík, skv. 2. mgr. 30. gr. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Umsagnir og ábendingar vegna kynningarinnar óskast sendar til skipulags- og byggingarfulltrúa á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eða á netfangið byggingafulltrui@vogar.is eigi síðar en 16. desember nk.

Í kjölfar kynningarinnar verður tillagan lögð fyrir sveitarstjórn til samþykktar fyrir formlega auglýsingu hennar og gefst þá kostur á að gera formlegar athugasemdir við tillögurnar.

Kynningargögn:
Aðalskipulag - tillaga - breyting
Deiliskipulag - tillaga - uppdráttur
Deilskipulag – tillaga – greinargerð og umhverfisskýrsla
Fornleifaskýrsla - deiliskráning