Kynningarfundur rammaáætlunar á Reykjanesi

Tilkynning frá verkefnisstjórn rammaáætlunar:
Kynningarfundur rammaáætlunar á Reykjanesi Verkefnisstjórn rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði boðar til opins kynningarfundar í Salfisksetrinu í Grindavík mánudaginn 12.apríl kl. 17:00. Á fundinum verða kynntar niðurstöður faghópa verkefnisstjórnar sem metið hafa svæði og virkjunarkosti, hver á sínu sérsviði. Í kjölfar kynninga verða umræður og fyrirspurnum svarað. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu rammaáætlunar: www.rammaáætlun.is>.

Verkefnisstjórn 2. áfanga Rammaáætlunar um vernd og  nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði hefur starfað óslitið frá haustinu 2007. Markmið rammaáætlunar er að skapa forsendur fyrir sátt um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Í áætluninni skal leggja mat á og flokka virkjunarkosti, jafnt vatnsafls og háhita og áhrif þeirra á náttúrufar og menningarminjar, meðal annars með tilliti til orkugetu, hagkvæmni og annars þjóðhagslegs gildis, samhliða því að skilgreina og meta áhrif á hagsmuni allra þeirra sem nýtt geta þessi sömu gæði.

Í ársbyrjun 2008 setti stjórnin á laggirnar fjóra faghópa til að meta mögulega virkjunarkosti og verðmæti þeirra svæða  sem verða fyrir áhrifum af framkvæmdum. Faghóparnir hafa nú lokið störfum og verða niðurstöður þeirra lagðar fram í opnu kynningar- og umsagnarferli sem standa mun í 6 vikur.
Verkefnisstjórn hefur gefið út skýrslu með kynningu á þeim virkjunarkostum/svæðum sem til umfjöllunar eru ásamt lýsingu á starfi, aðferðafræði og niðurstöðum faghópanna sem metið hafa svæðin og virkjunarkosti, hver á sínu sérsviði. Nú er leitað eftir athugasemdum og ábendingum um þessar niðurstöður faghópanna. Öllum er heimilt að senda inn umsögn um niðurstöður faghópanna, en tímafrestur til þess er til 19. apríl nk. Umsagnir skal senda inn í tölvupósti á netfangið
umsogn@rammaaaetlun.is>  en einnig má senda skriflegar umsagnir á póstfangið: Rammaáætlun, c/o Orkugarður, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík. Fyrirspurnir má senda á sama netfang.
Skýrslan ásamt margskonar ítarefni  liggur einnig frammi á vefsíðu rammaáætlunar,
www.rammaáætlun.is>
Niðurstöður faghópa er ekki lokaniðurstaða 2. áfanga rammaáætlunar. Að loknu umsóknarferlinu mun verkefnisstjórn nýta niðurstöður faghópanna og hafa umsagnir til hliðsjónar  við að setja saman heildarniðurstöður áætlunarinnar og senda þær stjórnvöldum.

Nánari upplýsinga gefur starfsmaður verkefnisstjórnar, Tómas Þór Tómasson, gsm 860-8098; netfang:
tomast@unak.is.