Kynning tillögu að deiliskipulagi fyrir Nesbú á Vatnsleysuströnd, Sveitarfélaginu Vogum

Sveitarfélagið Vogar auglýsir hér með kynningu tillögu að deiliskipulagi fyrir Nesbú á Vatnsleysuströnd vegna áforma um lagfæringar á húsakosti alifuglabúsins, skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/static/files/import//2010.

Tillagan verður til sýnis og umræðu hjá skipulags- og byggingarfulltrúa þriðjudaginn 8. september nk. á milli kl. 15:30-16:30 á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga að Iðndal 2. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is.

Í kjölfar kynningarinnar verður tillagan tekin til umfjöllunar hjá umhverfis- og skipulagsnefnd og að henni lokinni lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar fyrir formlega auglýsingu hennar. Gefst þá tækifæri til að gera formlegar athugasemdir við tillöguna innan tilskilins athugasemdafrests.

Vogum, 3. september 2015
Skipulags- og byggingarfulltrúi

 Deiliskipulagstillaga, Nesbú, Vatnsleysuströnd