Kynning tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði við Vogabraut, Sveitarfélaginu Vogum.

Sveitarfélagið Vogar auglýsir hér með kynningu tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir  iðnaðarsvæði við Vogabraut vegna áforma um byggingu súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju, skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan verður til sýnis og umræðu hjá skipulags- og byggingarfulltrúa þriðjudaginn 1. desember nk. á milli kl. 15:30-16:30 á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga að Iðndal 2. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is.
Í kjölfar kynningarinnar verður tillagan tekin til umfjöllunar hjá umhverfis- og skipulagsnefnd og að henni lokinni lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar fyrir formlega auglýsingu hennar. Gefst þá tækifæri til að gera formlegar athugasemdir við tillöguna innan tilskilins athugasemdafrests.

  Iðnaðarsvæði við Vogabraut - Deilisskipulagsbreyting - tillaga


Vogum, 30. nóvember 2015
Skipulags- og byggingarfulltrúi