Kynning tillögu að breytingu á deiliskipulagi

Kynning tillögu að breytingu á deiliskipulagi
fyrir iðnaðarsvæði við Vogabraut,
Sveitarfélaginu Vogum.

Sveitarfélagið Vogar auglýsir hér með kynningu tillögu að breytingu á deiliskipulagi vegna breyttrar staðsetningar á fyrirhugaðri súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju sem til stendur að reisa á iðnaðarsvæðinu við Vogabraut, skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan verður til sýnis og umræðu hjá skipulags- og byggingarfulltrúa á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga að Iðndal 2 þriðjudaginn 22. mars nk. á milli kl. 15:30-16:30. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is.
Í kjölfar kynningarinnar verður tillagan tekin til umfjöllunar í bæjarstjórn til samþykktar fyrir formlega auglýsingu hennar. Gefst þá tækifæri til að gera formlegar athugasemdir við tillöguna innan tilskilins athugasemdafrests.

Vogum, 17. mars 2016
Skipulags- og byggingarfulltrúi

Kynning tillögu að breytingu á deiliskipulagi