Kynning fornleifa í Sveitarfélaginu Vogum 12. mars nk.

Fyrir tæpum áratug síðan gerðu Sveitarfélagið Vogar og Fornleifastofnun Íslands með sér samning um aðalskráningu fornleifa í Sveitarfélaginu. Verkinu er að ljúka og verður afraksturinn kynntur á fundi í bókasafninu í Stóru-Vogaskóla á laugardaginn 12. mars kl. 15.  Kristborg Þórsdóttir, fornleifafræðingur, verður með skyggnusýningu og skýringar og svarar fyrirspurnum. Búast má við áhugaverðri kynningu, m.a. vegna þess að Kristborg hefur teiknað fjölda fornminja listavel og nákvæmlega og auk þess tekið ljósmyndir og teiknað fornleifakort  þar sem fornleifar eru merktar inn á með GPS-nákvæmni eins og sjá má í skýrslunum. Allir eru velkomnir!

Verkefnið er  unnið samkvæmt stöðlum Fornleifastofnunar um skráningu fornleifa  og niðurstöður skráðar í gagnagrunn sem nær til alls landsins. Þess má geta að Fornleifastofnun Íslands er  sjálfseignarstofnun undir stjórn fornleifafræðinga, en ekki ríkisstofnun eins og nafnið gæti bent til.

Samkvæmt lögum eru fornleifar hvers kyns mannvistarleifar, á landi, í jörðu, í jökli, sjó eða vatni, sem menn hafa gert eða mannaverk eru á og eru 100 ára og eldri. Fornleifar eru ekki aðeins mannvirki heldur einnig staðir sem á einn eða annan hátt tengjast menningu og atvinnuvegum. Gott dæmi um það eru varirnar með allri ströndinni sem róið var úr um aldir. Ef nauðsynlegt er talið að spilla fornleifum eða hylja þær, þarf að leita heimildar Minjastofnunar Íslands.

Starfsmenn Fornleifastofnunar skipulögðu tilhögun verksins, en tóku tillit til óska sveitarfélagsins um forgang tiltekinna skipulagssvæða. Sveitarfélagið veitti aðgang að tölvutækum loftmyndum til notkunar við skráninguna. Fornleifastofnun skilar staðsetningarhnitum fornleifa í sveitarfélaginu á tölvutæku formi sem má varpa inn á stafrænar loftmyndir og nýtist við skipulagsgerð.
Sveitarfélagið Vogar hefur fullan afnotarétt af afrakstri skráningarinnar, enda kostaði það vinnuna,  en höfunda ber ætíð að geta.

Verkinu er skilað í þremur skýrslum. Sú fyrsta kom út 2011, önnur 2014 og sú þriðja og síðasta er nú að koma út. Fornleifarnar eru vel á annað þúsund og skráðar og númeraðar eftir jörðum (lögbýlum).
Hægt er að skoða tvær fyrstu skýrslurnar hér á vef sveitarfélagsins og sú þriðja verður aðgengileg þar innan skamms: /static/files/import/umhverfismal/fornleifar_i_vogum/fornleifar_i_vogum