Kvikmyndasýning Kino klúbbsins

 í Hlöðunni Egilsgötu 8 Vogum fimmtudagskvöldið 11. febrúar  kl. 20:00

Fimmtudaginn 11. febrúar verður kvikmyndasýning að Egilsgötu 8 á vegum Kino klúbbsins sjá nánar á
http://www.facebook.com/pages/Reykjavik-Iceland/Kino-Klubbur/137021180428

Sýningin er haldin í samstarfi við Menningarverkefnið Hlaðan.

Myndin sem sýnd verður að þessu sinni er eftir bandarísku listakonuna Deborah Stratman og ber hún heitið From Hetty To Nancy en hún var að hluta tekinn upp hér á Íslandi.

Að auki verða sýndar tvær stuttmyndir eftir hollensku kvikmyndagerðarkonuna Francien Van Everdingen.

Ókeypis aðgangur og allir velkomnir

Sýningin hefst kl. 20 að Egilsgötu 8 Vogum.

Verkefnið er styrkt af Menningarráði Suðurnesja.



Á næstu vikum verður sýnd stutt kvikmynd eftir en sýningin verður í samstarfi við Rebeccu Moran sem hefur veg og vanda að Kino klúbbnum

Francien Van Everdingen

Myndatexti: Úr kvikmyndinni From Hetty to Nancy eftir bandarísku kvikmyndagerðarkonuna Deborah Stratman.