Kvennahlaupið 2008

Kvennahlaupið fer fram þann 7. júní næstkomandi. Hlaupið hefst kl. 11.00 og hlaupið verður frá Íþróttamiðstöðinni, en hlaupið er 2 km.

Nánari upplýsingar má finna á vef Kvennahlaupsins.

Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig sem fyrst til að forðast biðröð á hlaupadaginn. Skráning fer fram í íþróttamiðstöðinni og er ekki hægt að greiða með greiðslukorti. Þátttakendur fá frítt í sund að hlaupi loknu, auk þess sem boðið verður upp á Egils Kristal og Special K.