Kveikt á Jólatrénu

Sunnudaginn 6. desember kl. 16:00 verða jólaljósin tendruð á jólatrénu í Aragerði í Vogunum.  Jólatónlistin mun hljóma og flutt verður hátíðarávarp. Heyrst hefur að einhverjir af þeim jólasveinabræðrum muni kíkja við og jafnvel með glaðning fyrir stillt börn í pokahorninu. Einnig verður 10.bekkur með kakósölu í Aragerði.

Sama dag verður aðventustund í Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd og er vakin athygli á því að hún hefst kl. 17:30. Þar eru börn og unglingar sérstaklega hvött til að taka þátt með leikriti og söng.

Jólakveðja
frístunda- og menningarfulltrúi