Kveikt á jólatré

Sunnudaginn 2. desember (fyrsta sunnudag í aðventu) verður kveikt á jólatrénu okkar í Aragerði kl. 16:30.  Við ætlum auðvitað að æfa jólalögin saman og jafnvel dansa í kringum jólatréð.  Heyrst hefur að jólasveinninn verði á ferðinni um Suðurnesin þennan dag….. og hver veit nema hann kíki aðeins á okkur.  Og hugsanlega mun hann eiga einhvern glaðning til að dreifaJ

Aðventumessa verður í Kálfatjarnarkirkju þennan sama dag og hefst hún kl. 14:00. Að henni lokinni er öllum Vogabúum velkomið að kíkja í kaffi í Félagsmiðstöðinni á vegum foreldrafélags leikskólans. Kaffið kostar 1.000 kr fyrir fullorðna, 300 kr fyrir krakka á aldrinum 6-14 ára og frítt fyrir leikskólabörnin.

Félagsmiðstöð