Kökubasar og kaffihúsastemmning í Álfagerði

Kæru íbúar
Laugardaginn 28.mars verða eldri borgarar í Vogum með kökubasar í Álfagerði á milli kl 13:00 og 15:00.
Einnig verður kaffihúsastemmning og hægt verður að kaupa kaffi og meðlæti.
Allur ágóði rennur óskiptur í ferðasjóð eldri borgara í Vogum.
Allir velkomnir

Kær kveðja, eldri borgarar í Vogum