Kökubasar 10. bekkjar

Við nemendur í 10. bekk erum að safna okkur fyrir  skólaferðalagi til Danmörku  sem stefnan er á að fara í næsta vor.  Þess vegna þurfum við að vera mjög dugleg og safna okkur peningum til að ferðin gangi upp.
Við ætlum því að skella í nokkrar gómsætar  tertur  og bjóða þær til sölu föstudaginn  2. nóv kl 16.00. fyrir framan SPKEF útibúið Iðndal 2.

Endilega komið og nælið ykkur í gómsætar kökur og styrkið gott málefni.