Knattspyrnudeild Þróttar Vogum

Aðalfundur knattspyrnudeildar Þróttar Vogum fór fram á dögunum.  Björn Sæbjörnsson sá um fundarstjórn og Gunnar Helgason var fundarritari, leystu þeir það vel af hendi.

Marteinn Ægisson formaður deildarinnar fór yfir skýrslu stjórnar og Gunnar Helgason fór yfir reikninga stjórnar sem voru samþykktir. Úr stjórn á þessum aðalfundi fór Gunnar Helgason og var Gunnari þakkað óeigingjarnt starf síðustu árin. Veigar Örn Guðbjörnsson kom í hans stað. Aðrir stjórnarmeðlimir buðu sig fram aftur.