Knattspyrnudeild Þróttar hélt aðalfund sinn á dögunum

Fram kom í skýrslu stjórnar að árið hefði verið gjöfult hjá deildinni. Liðið komst upp um deild sl. haust. Breytingar urðu á stjórninni. Marteinn Ægisson sem verið hefur formaður deildarinnar síðustu árin gaf ekki kost á sér til formanns. Friðrik V. Árnason var því sjálfkjörinn formaður deildarinnar. Aðrir í stjórn deildarinnar eru Veigar Örn Guðbjörnsson og Marteinn Ægisson.
Knattspyrnudeild Þróttar rekur meistaraflokk Þróttar og einnig getraunastarf félagsins.

Myndin er af Friðriki V. Árnasyni