Knattspyrnudeild Þróttar auglýsir opið alla laugardaga í vetur milli 11-13 uppí Íþróttahúsi.

Félagskaffi Þróttar á laugardögum !

Við hjá Þrótti Vogum ætlum að efla félagsstarfið enn frekar hjá okkur í vetur og verðum með opið hús í Íþróttamiðstöðinni Vogum alla laugardaga í vetur milli kl. 11 og 13. Þangað geta allir komið í kaffi, hitt gamla félaga og kynnst nýjum úr okkar skemmtilega hópi.

Við byrjum formlega næsta laugardag 12. janúar Enn fremur geta allir tekið þátt í innanfélagsleik okkar í getraunum og sýnt snilli sína á því sviði. Kunnir þú ekki að tippa þá eru sérfræðingar okkar boðnir og búnir að aðstoða þig. Hafir þú ekki áhuga á að tippa er það líka í góðu lagi svo framarlega sem þú mætir með góða skapið. Hlökkum til að sjá þig.


Einnig bjóðum við uppá innanfélagsleik hjá okkur fyrir þá sem vilja.




Getraunadeild Þróttar 2013 vordeild
 
Tveir saman í liði.
 
Kostar 4000kr á lið eða 2000kr á mann.
 
Innifalið í keppnisgjaldi er miði á glæsilegt lokahóf í apríl 2013 þar sem Tippmeistarar 2013 verða krýndir , bröns í lok febrúar
 
Má tvítryggja 6x og engar þrítryggingar.
 
Tveir riðlar, dregið 12. janúar eftir sjö vikur þá tekur við úrslitakeppni í þrjár vikur.
Spilað í 12. vikur, 1. umferð 12. janúar og  10. umferð 6. april. Kostar ekkert að vera með, þarf ekki að borga fyrir raðirnir.

Hægt verður að skrá sig til 19. jan!

Verðum með bikarkeppni samhliða deildarkeppni. Fullt af aukakeppnum.
Ef þú getur ekki komið á laugardögum þá geturu sent okkur röðina. Allir geta verið með þó þeir geti ekki mætt alltaf.

Gerum saman stóran miða þegar það er risapottur !!!
 
Hvetjum alla til að mæta og vera með í skemmtilegasta getraunastarfi landsins
 
Við verðum alla laugardaga í íþróttahúsinu frá 11-13 Tippklúbbur Þróttar !!!