Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga

Auglýsing um sveitarstjórnarkosningar 2010
Almennar sveitarstjórnarkosningar fara fram 29. maí 2010

Frestur til að skila framboðslistum er til 12:00 á hádegi laugardaginn 8. maí 2010.

Kjörstjórn veitir framboðslistum móttöku þann dag frá kl. 10:00 til kl. 12:00 á hádegi í Álfagerði.

Kjörstjórn vill vekja sérstaka athygli á 22. gr. laga nr. 5/1998 en þar er kveðið á um fjölda meðmælenda með framboðslistum sem skuli vera að lágmarki 20 og hámarki 40 í Sveitarfélaginu Vogum.

Frekari upplýsingar má finna á http://www.kosning.is/sveitarstjornarkosningar/

Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga,

Hilmar Egill Sveinbjörnsson
Jón Ingi Baldvinsson
Halla Jóna Guðmundsdóttir