Kjörnir fulltrúar á skólabekk

Laugardaginn 6. febrúar sl. var haldið námskeið fyrir bæjarfulltrúa og nefndarmenn sveitarfélagsins um réttindi og skyldur kjörinna fulltrúa.

Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í Grindavík, sem jafnframt er menntaður stjórnsýslufræðingur, hélt námskeiðið.

Þátttaka var góð eins og sést á meðfylgjandi myndum.