Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu

KJÖRFUNDUR
vegna þjóðaratkvæðagreiðslu í
Sveitarfélaginu Vogum 6. mars 2010

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00
Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, gengið inn frá leikvelli

Sérstök athygli kjósenda er vakin á 79. gr. laga nr. 24/2000

„Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér, svo sem með því að segja til
sín og framvísa kennivottorði eða nafnskírteini, eða á annan fullnægjandi
hátt að mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði
samkvæmt kjörskránni afhendir kjörstjórn honum einn kjörseðil“.

Nánari upplýsingar um framkvæmd atkvæðagreiðslunna má finna á www.kosning.is

Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga,

Hilmar Egill Sveinbjörnsson
Jón Ingi Baldvinsson
Halla Jóna Guðmundsdóttir