Kjörfundur vegna forsetakosninga 25. júní 2016

KJÖRFUNDUR

vegna forsetakosninga í
Sveitarfélaginu Vogum
25. júní 2016


Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00

Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, gengið inn frá leikvelli


Kjörskrá í Sveitarfélaginu Vogum vegna forsetakosninga liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga fram að kjördegi.

Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.



Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga