Kjörfundur 20. október 2012

KJÖRFUNDUR

Þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs

í Sveitarfélaginu Vogum
20. okt. 2012

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00

Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, gengið inn frá leikvelli


Kjósendur eru hvattir til að kynna sér vel þau málefni sem kosið er um á www.thjodaratkvaedi.is eða í bæklingi sem borinn var í hús.

Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofu fram að kjördegi.

Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.



Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga