Kálfatjarnarkirkja upplýst

Kálfatjarnarkirkja hefur verið lýst upp. Guðríður Þórðardóttir og Guðmundur Í. Ágústsson gáfu til kirkjunnar þessa lýsingu í minningu sonar síns, sem lést í bílslysi á Garðvegi fyrir nokkrum árum. Gjöfin var afhent við aðventumessu 14. desember s.l. Lýsingin er sérlega falleg og nýtur sín vel í skammdeginu og blíðunni sem hefur verið síðustu daga. Rafn Sigurbjörnsson hefur tekið þónokkrar myndir af kirkjunni um jólin og er tengill á myndirnar hér: http://www.islandsmyndir.is/html_skjol/sudvesturland/kalfatjarnarkirkja/forsida_kalfatjorn_yfirlit_01.htm