Júdó

5. sæti á Opna sænska meistaramóti unglinga í júdó.


Katrín Ösp Magnúsdóttir 18 ára úr Þrótti náði þeim frábæra árangri að lenda
í 5. sæti á Opna sænska meistaramóti unglinga í júdó, nú um helgina. Katrín
Ösp vann tvær viðureignir af fjórum á ippon. Hún tapaði annarri
viðureigninni mjög tæpt og litlu munaði að hún lenti í þriðja sæti.