Jólin kvödd með gleði og söng

Veðrið lék loksins við okkur laugardaginn 10. janúar þegar jólin voru kvödd á þrettándagleði í Vogunum.
Farin var blysför frá Félagsmiðstöðinni að minnismerkinu fyrir neðan Stóru-Vogaskóla. Þar tóku Lionsmenn í Keili á móti fólki með brennu. Skömmu síðar hófst glæsileg flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Skyggnis.

Að lokinni flugeldasýningunni var haldið inn í Tjarnarsal þar sem nokkrir nemendur í Stóru-Vogaskóla héldu uppi fjörinu. Þar sá dómnefnd sem var stýrt af kvenfélagskonum í Fjólu um að velja skemmtilegustu búningana. Í lok hátíðarhaldanna voru öll börn yngri en 12 ára leyst út með lítilli gjöf frá sveitarfélaginu. Sannarlega skemmtileg þrettándagleði í Vogunum.

Myndir af þrettándagleðinni er hægt að skoða hér í myndasafninu.