Jólin kvödd með gleði og söng

Það var gleði í loftinu þótt kári blési hressilega þegar jólin voru kvödd á þrettándagleði í Vogunum.
Farin var blysför frá Félagsmiðstöðinni að minnismerkinu fyrir neðan Stóru-Vogaskóla. Þar tóku Lionsmenn í Keili á móti fólki með brennu. Skömmu síðar hófst glæsileg flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Skyggnis.

Að lokinni flugeldasýningunni var haldið inn í Tjarnarsal þar sem Aron Freyr nemandi í 10.bekk Stóru-Vogaskóla hélt uppi fjörinu. Þar sá dómnefnd sem var stýrt af kvenfélagskonum í Fjólu um að velja skemmtilegustu búningana. Voru það biskup, nunna, Karíus og Baktus, ung senjóríta og galdranorn sem fengu glaðninga fyrir skemmtileg þrettándagervi. Í lok hátíðarhaldanna voru öll börn yngri en 12 ára leyst út með lítilli gjöf frá sveitarfélaginu. Sannarlega skemmtileg þrettándagleði í Vogunum.  Fleiri myndir má sjá hér