Jólin kvödd með gleði og söng

Það var gleði í loftinu þegar jólin voru kvödd á þrettándagleði í Vogunum.
Farin var blysför frá Félagsmiðstöðinni að minnismerkinu fyrir neðan Stóru-Vogaskóla. Þar tóku Lionsmenn í Keili á móti fólki með brennu. Þegar fór að draga úr bálinu hjá Keilismönnum hófst glæsileg flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Skyggnis.

Að lokinni flugeldasýningunni var haldið inn í Tjarnarsal þar sem Júlla diskó hélt uppi fjörinu. Þar sá dómnefnd sem var stýrt af kvenfélagskonum í Fjólu um að velja skemmtilegustu búningana. Voru það Andrés Önd, fangi og smiður sem fengu glaðninga fyrir skemmtileg þrettándagervi. Í lok hátíðarhaldanna voru öll börn yngri en 12 ára leyst út með lítilli gjöf frá sveitarfélaginu. Sannarlega skemmtileg þrettándagleði í Vogunum.

Álfadrottningin og álfakóngurinn

 

Fleiri myndir frá Þrettándanum má sjá hér í myndasafni sveitarfélagsins