Jólatré 2006

Kveikt var á jólatrénu í Aragerðinu sunnudaginn 3. desember.  Fengum  við
góða gesti í heimsókn. Kirkjukór Kálfatjarnarkirkju söng nokkur lög,
jólasveinarnir Hurðaskellir og Stekkjastaur mættu á svæðið og fengu alla með
sér í dans í kringum jólatréð. Hinn góðkunni tónlistamaður Ásgeir Páll
spilaði jólalögin.  Þetta var virkilega vel heppnuð og notaleg stund svona í
byrjun aðventunnar.