Jólaljósin tendruð 1. desember kl. 17.00

Sunnudaginn 1. desember verður aðventumessa kl 15:00 í Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd. Sama dag kl. 17:00 verða jólaljósin tendruð á jólatrénu í Aragerði. Séra Gunnar Jóhannesson flytur hugvekju og kirkjukórinn mun syngja nokkur jólalög. Nemendur í 1. bekk syngja og heyrst hefur að einhverjir af þeim jólasveinabræðrum muni kíkja við og verða jafnvel með glaðning fyrir stillt börn í pokahorninu.

Krakkarnir í 10. bekk verða

með heitt súkkulaði og annað góðgæti til sölu til styrktar lokaferð þeirra .