Jólakveðja frá bæjarstjóra

Kæru íbúar!

Fyrir hönd bæjarstjórnar og alls starfsfólks sveitarfélagsins óska ég öllum íbúum sveitarfélagsins gleðilegra jóla. Megi hinn sanni jólaandi ríkja og ná til okkar allra nú þegar hátíð ljóss og friðar fer í hönd. Það er einlæg von mín að við eigum öll góða og notalega jólahátíð með ástvinum okkar og fjölskyldum.
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri