Jólahús Voga 2013

 Bæjarráð valdi Heiðardal 3 sem jólahús ársins 2013. Það eru þau Sæunn Inga Margeirsdóttir og Ívar Júlíusson sem þar búa ásamt tveimur börnum sínum. Orkusalan gaf verðlaunin sem að þessu sinni var árskort í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Það var Hafliði Ingason fulltrúi Orkusölunnar sem afhenti Ívari verðlaunin á Þorláksmessu. Við óskum fjölskyldunni til hamingju með tilnefninguna og óskum þeim gleðilegra jóla.